Eva Máney Gígja Hildur Elsa Dagbjört

Velkomin. Munið að kvitta í gestabókina!!!!

14.09.2008 11:05:33 / Eva

EY-KEY

Sælar.... er ekki kominn tími til að lífga uppá síðuna aðeins??
Próflok Hildar löngu búin og svona. En takk stelpur fyrir mega túrbó góða ferð. Takk Máney fyrir gestrisnina, Ég er búin að prjóna nokkrar stúkur síðan ég kom heim og hringi í Monsuna bráðum til að biðja hana að kaupa meira garn ;) Monsa hvenær kemuru suður? Stefnum við ekki á smá kveðju hitting þá? En allavegana, hér eru stikkorðin góðu sem skrifuð voru á tvírit:

Skíta - villt í rúmi- Þórdís Helda Steinunnar-Völudóttir- pönnukökur-spennur- glimmer - STÚKUR- kemur þér ekki við - kertavax - peningana eða lífið - spjall - lífnauðsynlegu eggin - quiltbúðin - 26000 - bakaríið við brúna - ananaspizzustuldur - köttur - friðbjörn flugdólgur heitinn (geitungur) -  bók - Greifinn - prump - símanúmer á reikning - kubba - "living on the bridge" - naglalakk - svínalykt - hestbak á kiðagili - krumla - vandræðalegt - tvírit - $100 - fleygja sér - piparjunka- Bono - hor í hári - Dabba grannie - ná mér í gen á netinu - Grandma ain´t no Judas - hlaupbangsar - ilmvatn - "hvenær fer fólk hér í bæinn?" - elsku barn - gullbolamókkonan - Jakob!


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.06.2008 19:03:46 / Hildur

Próflok vikunnar...

...eru að sjálfsögðu MÍN próflok þar sem ALLIR aðrir eru að sjálfsögðu LÖNGU búnir í prófum. Ahhh....nú tekur bara við afslappelsi, bæjarrölt, grillpartý, sólböð og almenn hygge þangað til ég byrja að vinna 7. júlí.

Hilsen
Hilla í sumarfríi 

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.06.2008 18:30:18 / Eva

Brúðhjón vikunnar eru...

Eva Kristinsdóttir og Chris Martin....

Nei bara djók.... auðvitað eru það ...
Máney og Víðir :) Innilega til hamingju Frú Máney og Herra Víðir. Rosa leiðinlegt að missa af brúðkaupinu sem ku hafa verið mjög skemmtilegt. En í staðinn skálaði ég fyrir þeim á Karabíska hafinu. Komin heim í kuldann og blogga e-n tímann þegar ég nenni um ferðina (ef þið nennið að lesa).

Er djamm á ykkur stúlkum um helgina?

kv. Eva aðstoðarlyfjafræðingur!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.05.2008 10:29:12 / Elsa

Sveinn vikunnar...

Vúhú, þá er maður útskrifaður.  Elsa Hannesdóttir Tannsmiður ætti að standa núna í símaskránni:d
Ég vona að Eva hafi það gott í útlandinu, Döbbu gangi vel með verkefnið sitt, Gígja hafi það gott með litla afmæliskarlinum, Máney sé að massa allan undirbúning og Hillu líði vel í nýju íbúðinni:lol:
Kveðja Elsa.

» 8 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 23:02:37 / Eva

Stuðningsklúbbur vikunnar...

Já eins og ég sagði ykkur gott fólk þá ætla ég að gera mitt besta til að halda þessari síðu lifandi!  Þess vegna ætla ég að hafa nýjan flokk....

og það er "eitthvað" vikunnar. Eitthvað getur verið hvað sem er, hrós, bros, borg, setning, gullkorn, heimasíða eða bara hvað sem er... ég ætla að byrja á að tilnefna stuðningsklúbb vikunnar en hann er......

"Máney á facebook stuðningsklúbburinn"

Annars þakka ég ykkur fyrir síðast (þrátt fyrir dúndrandi hausverk) og vil endilega óska Monsunni fyrirfram til hamingju með brúðkaup/kveðjupartý/útskriftarpartý þar sem ég kemst ekki í þetta mega geim! :(

Svo vil ég koma því á framfæri að ég "krefst" þess að við höldum eitt gott partý í sumar, myndirnar á fésbókinni hennar Gígju rifjuðu upp svo góða tíma :)

Að lokum vil ég þakka pent fyrir mig. Endilega hafið samband ef þið eruð á djamminu um helgina.... orðið svo langt síðan ég djammaði að það verður tryllt.

kv. Eva

p.s. ég áskil mér þó rétt til að standa ekki við gefin loforð í hverri viku og áskil ykkur rétt til að taka að ykkur vikur líka!

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.05.2008 21:11:05 / Eva

Vissuði að....

Skilgreining lyfs er eftirfarandi:
"Lyf er hvers konar efni eða efnasamsetningar sem sögð eru búa yfir eiginleikum sem koma að gagni við meðferð sjúkdóma hjá mönnum eða dýrum eða við forvarnir gegn sjúkdómum eða hvers konar efni eða efnasamsetningar sem nota má fyrir menn eða dýr eða gefa þeim, annaðhvort í því skyni að endurheimta, lagfæra eða breyta lífeðlisfræðilegri starfsemi fyrir tilstilli líflyfjafræðilegrar eða ónæmisfræðilegrar verkunar eða verkunar á efnaskipti eða til þess að staðfesta sjúkdómsgreiningu"

Já, þetta er skilgreining lyfs skv. Lyfjalögum nr 93 /1994!

Þetta er held ég lengsta setning sem ég hef séð! Hvað eru mörg EÐA í þessari setningu!!! Úff þetta þarf ég víst að kunna fyrir þriðjudag þegar ég fer í mitt síðasta próf á þessari próftíð :) Þetta minnir mig á sannanir og reglur í MR-stærðfræðinni!

Smá getraun í lokinn.... þekkiði þessa?


og hvað er breytt við þessa?


Eruð þið ekki almennt hressar bara? Fannst svo sorglegt að sjá enga færslu skrifaða síðan í apríl.... síðan í gröfina eða endurlífgun? Hvað segið þið um það?

» 6 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 20:01:26 / Eva

Fullorðins

Á fimmtudag skráði ég mig í námskeið fyrir næsta ár og þar á meðal var útskrift í júní 2009!
Á föstudag var meistara-lokaverkefnalistinn birtur!
Á laugardag átti ég 10 ára fermingarafmæli!!

Er þetta ekki pínu fullorðins???

Farin í ræktina, það er ekkert svo fullorðins!

» 8 hafa sagt sína skoðun

29.03.2008 20:29:57 / Hildur

Mánudagsgleði

Þá er það ákveðið....hittingur á Austurströndinni (heima hjá m&p) á mánudaginn :D Hvernig líst ykkur á að hittast um 8 leytið? Ég sé um drykki og e-ð smá gotterí (ákveð hvað það verður þegar þið eruð búnar að kommenta hvað þið ætlið að koma með) ;)

Hlakka til að sjá ykkur

Hildur  

» 6 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 17:15:41 / Hildur

???

Hola chicas!!!

Hvað segið þið um hitting? Heima hjá mér (þó ekki í Odense) :haha: ? Átkvöld? Eitthvert kvöldið eftr páska? Sama fyrirkomulag og áður.....allir mæta með einhverjar kræsingar? Hvenær komist þið?

Hillpill


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 09:34:12 / Eva

Afmælisbarn

Elsku Gígjan okkar er 24 ára í dag. Hafðu það gott í dag Giger. Hér má sjá mynd af skvísunni:


ÍF.

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 15:52:40 / Eva

Mega trylltur hittingur!

Sælar

Við Hildur virðumst vera búnar að breyta plönum okkar þannig að við kæmumst allar á fimmtudaginn :) Þá er bara spurningin, hvar og hvenær eigum við að hittast?

P.s. Hildur, Áslaug gat sumsé breytt úr fimmtudegi yfir á sunnudag svo það ætti að vera klappað og klárt :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 21:27:20 / Eva

Nei, það á enginn afmæli í dag...

Auglýsi eftir hittingi þar sem við getum borðað gúmmulaði eins og okkur einum er lagið og ákveðið dagsetningu sem hentar öllum með eykei.... virðist ætla að vera erfitt svo ég held við verðum að hittast.

 Gígja er að fara í próf á þri og segist komast eftir það. Hvenær hentar? E-n tímann í næstu viku?

 kv Eva sem kláraði sinn síðasta verklega tíma í HÍ ever í dag :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 19:19:50 / Eva

Stórafmæli

Jæja, þá er það aldursforsetinn sem á stórafmæli í dag :)

Fyrir þá sem ekki vita þá er það snillingurinn hún Dagbjört sem er 25 ára í dag:

Innilega til hamingju með daginn gamla mín.

Kv. Eva

P.s. ég lýsi eftir Gígju


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 16:36:49 / Elsa

Eikey!!

Jæja stelpur þá er það mál málanna.  Hvenær eigum við að fara?  Hvernig, hvar og hvaða???  Við verðum að fara að setjast niður á ákveða þetta.  Og Máney hvenær getur þú tekið á móti okkur?

» 10 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 18:43:21 / Elsa

Afmæli!!!!!

Innilega til hamingju með afmælið elsku Eva okkar.  Vonandi hefuru það rosa gott í útlandinu:)  (Ætlaði að setja mynd, en hún vildi ekki koma:|)

Annars er ekki mikið að frétta bara aaaalein í vinnunni, karlinn í fríi, allt of mikil ábyrgð.  Hlakka ekkert smá til þegar við förum allar saman til Eykey, það verður geggjað!!!  Vonandi sjáumst við skjótt:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16